mars 31, 2005

Gleymdi smá...

Það sem gerðist meira er að ég fór svo með Freyju og Hauki á kaffihús þar sem mikið var rætt og spjallað. Við Haukur ætlum að plotta eitthvað prakkarastik, það verður að koma í ljós hvort af því verði. Einni sagði Haukur að hann væri til í að halda menningarklúbbnum áfram því Skúlinn er ekki á landinu. Nú er bara finna dag og topic....Svo þarf ég að koma með tvær reynslusögur. Önnur er um þessa blessuðu vinnumiðlun og hin er um útvarp sögu. Reyndar um blues klúbbinn lika. Kíkið á www. blues.is og skoðið síðuna. En þær koma bráðum....working on it....

kominn aftur...

Jæja...byrjaður að blogga aftur eftir smá pásu. Ég hef reyndar verið í bölvuðum vandræðum með þetta blogger dæmi. Er búinn að reyna í marga daga að gera eitthvða og blogger síðan er í einhverju rugli. Það rétt hafðist að breyta um lit því það fraus alltaf og eitthvað vesen á þessu. Ég hef verið að hugsa um að prufa að blogga á einhverjum af þessum íslensku blogg síðum. Er að skoða það. Annyhoo...ég verð að breyta útlitinu aðeins meira þannig að munið að gera reload. Annars hefur lítið gerst, ég var á þessu námskeiði sem talað er um í síðasta bloggi og lærði ég nokkra nýja hluti þar. Meðal annars stal ég nýrri heimasíðu fyrir mig :) og hún er hér: http://www.centrum.is /~vorlon og þar er ýmislegt.. endilega kíkið þangað... sérstaklega á download vikunnar. Það sem hefur drifið á mína daga undafarið fyrir utan þetta venjulega....Fór með Gunnari Kolaportssyni og Freyju á blueshátið þar sem við sáum KK og Grinders bandið sem hann spilaði með þegar hann flutti hingað heim árið 1989 eða svo. Tónlist sem er í stíl við fyrstu plötuna hans. Lucky one. En vinsamlega ekki versla þessa plötu frá Skífunni, því Skífan er handbendi hins illa.

mars 01, 2005

Fékk námsskeiðið.

Það var ekki vinnumiðluninni að þakka... heldur fór ég niðreftir þar sem námskeiðið var haldið og beið, þegar það varð ljóst að einn myndi ekki mæta bað ég um að fá stæðið hans og það gekk eftir. Menn sem skrá sig á svona námskeið eiga að mæta. Ef ekki, þá til helvítis með þá bara, og hananú. Helgin var fín, við Freyja heimsóttum Sveinbjörn og Þórunni á laugardaginn um horfðum á myndina Constantine með Keanu Reeves. Þetta var svöl mynd.. Flott myndataka sem gerði hana mjög skemmtilega og bara góður hasar. Blanda af Matrix og Exorsist. Svo vorum við bara að kjafta og þannig til að verða tvö. Fyrr um daginn förum við í gymmið og púluðum þessi ósköp. Ég er svo stoltur af Freyjunni minni því hún er að lyfta grimmt þessa dagana, og stendur sig vel. Mittið er að minnka en handleggsvöðvarnir hennar að stækka. Hún fer að taka mig í sjómann bráðum, og vinna.

Sunnudagurinn var rólegur...svo rólegur að ég man bara ekki hvað ég gerði. Við Freyju fórum allavera út á Bása að skjóta kúlum....aðeins að hressa upp á sveifluna. Margt gott sást þar, gamlir taktar, en mikið ryð í gangi... maður verðu að slípa þetta til með þvi að spila meira. Svo vorum við að taka til um kvöldið og þannig.

Mánudagurinn var námskeið hjá mér við förum í grunninn á Photoshop og það er alveg rosalega gagnlegt að ná réttu valdi á þessu forriti. Ég ætla að kenna Freyju þetta líka... ef hún vill læra það :) Um kvöldið kom Skúlinn í mat hjá okkur. Við elduðum Keilu, sem er fiskur sem ég fékk úti í fiskbúð, og er einskonar blanda af Skötusel og Þorski á bragðið, ekkert smá góður. Hann var í svona kryddblöndu, einskonar marineríngu. Geggjað gott. Svo var bara salat sem innihélt, Klettasalat, tómata, gúrkur og papriku. Svo voru brún hrísgrjón með því. Svo var setið inni í eldhúsi og kjaftað. Eftir það fórum við inn í stofu og fengum okkur expresso kaffi og töluðum meira uppvið kaffihúsaborðið. Við vorum ekki alltaf sammála, ég var að hluta til ósammála Skúla og Freyju í umræðum um trúmál í skólum.

Ég heyrði pistil eftir einn mann sem heitir Jón Valur Jensson og er guðfræðingur að mennt. Hann er að upplifa sínar 15 mínútur núna. Hann byrjaði sem svona kverúlant á Útvarpi Sögu, en snérist svo upp í pest. Hann hringdi í alla þættina hjá öllum þáttarstjórnendum og með skoðun á öllu. Svo núna er hann með pistil eða pistla í Sögu, og svo var hann í Silfri Egils um helgina. Pistillinn verður settur hingað sem linkur á eftir. Ég fór niður á Sögu og fékk pistilinn á disk. Svo var annar pistill sem ég fékk líka, og það var lyga-áróðurs pistill gamla kratans og núverandi bæjarstjóra Reykjanesbæjar (Keflavík). Ég rétt missti af byrjuninni á þættinum og kom inn í umræðu hans um húnsæðismálin og hvað er dýrt að kaupa íbúðir. Hann sagði frá bréfi frá fólki, par með tvö börn, eitt á leikskóla og hitt í grunnskóla (hljómar eins og pakki frá Flugleiðum, miðað við tvo fullorðna og tvö börn á aldrinum 2-11 ára), sem var að kaupa sér íbúð og var að velta því fyrir sér í hvaða hverfi það ætti að kaupa í, miðað við samgöngur, skóla, aðþreyingu og svo allskonar opinber gjöld og fleira. Þegar hér var komið vissi ég ekki hver var að tala, og sv0 runnu á mig tvær grímur þegar hann segir að þetta par sem hafði skrifað honum þetta bréf og reiknað út ótrúlegustu hluti, hluti sem mér hefði aldrei dottið í hug að athuga, sagði að þegar það hafði leitað á öllu höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, hafi það fundið stað "rétt utan við borgina" stað sem hefði tekið breytingum síðastliðin ár og þar hefur verið uppbygging og allt. Ég gekk útfrá því að þetta væri Mosfellsbær. Nei ekki var Adam lengi í paradís (enda fór hann þaðan og gifti sig...sem er önnur saga....) heldur var þetta Reykjanesbær. Vá þetta var sjokk maður. Svo þegar hann var búinn að útlista kosti bæjarins (hann minntist ekki á morð, fyllerí og atvinnuleysi eins og þekkist best á suðurnesjum) talaði hann stuttlega um kosti þess að hafa trúaráróður í skólum. Og endaði á því að blessa fólk í Jesú nafni. Þá féllust mér hendur...ég hringdi niður á Sögu og fékk þetta skrifað á disk sem ég gleymdi útí bíl. Endilega kíkið við hér á eftir eða á morgun og það verðu linkur á þetta þar sem þið getið dl þessum pistlum tveim. Alger möst að heyra þetta. Allavega...ég þarf að læra heima. Hvernig á að gera einhverja hluti í photosphop og þannig.

Svo eitt enn, ég keypti mér nýja Baskahúfu, og var í dag með húfuna og í leðurjakka og með sólgleraugu, enda mikil sól úti. Svo sá ég mig í spegli og fékk bara sjokk....Töffaraskapurinn var slíkur.... ef ég nenni pósta ég kannski mynd af mér í múnderingunni á netið :)

Um mig

Myndin mín
I was born in Iceland and lived there for most of my life until I moved to the UK to study. I am enjoying life and educating myself at the same time.